Ræktun
Ræktunarviðmið
Samkvæmt reglum HRFÍ verða Yorkshire Terrier tíkur að vera að lágmarki 18 mánaða við fyrstu pörun.
Einnig mælir deildin með að rakkar séu amk 15 mánaða gamlir fyrir pörun og verða þeir að sjálfsögðu að vera með bæði eistun niðri.
Ekki er nauðsynlegt að fara með Yorka í sérstakar skoðanir vegna arfgengra sjúkdóma.
Reglur HRFÍ kveða einnig á um að láta ekki tík eiga fleiri en fimm got. Ef tík eignast tvö got innan 12 mánaða tímabils þarf að hvíla tíkina í a.m.k. í 12 mánuði fyrir næsta got. Para ekki tík sem er orðin 7 ára gömul hafi hún ekki átt hvolpa áður og sé ætlunin að para tík sem er 7 ára eða eldri þarf sérstakt vottorð frá dýralækni (sjá nánari í grundvallarreglum HRFÍ)
Á hundasýningu geta eigendur/ræktendur fengið skrifleg álit dómara (stundum sérfræðinga í tegundinni) á viðkomandi hundi, hversu vel hann samræmist ræktunarmarkmiði tegundarinnar (sjá nánar í spurt og svarað).
Einnig geta eigendur tíka sent inn fyrirspurn til ræktunarráðs sem mælir þá með 3 hundum, sé það mögulegt, sem gætu hentað vel til undaneldis með þessari tík (sjá nánar í spurt og svarað).