Spurt og svarað - Yorkshire Terrier deild

Til styttinga er Yorkshire Terrier deild stundum kölluð Yorka deild eða YTdeild.

Fyrir hverja er Yorkshire Terrier deild?
Yorka deildin er fyrir alla eigendur allra Yorkshire Terrier hunda sem ættbókarfærðir eru innan HRFÍ og einnig geta áhugamenn um tegundina skráð sig í deildina en þeir geta ekki boðið sig fram í stjórn nema að vera skráðir fyrir Yorkshire Terrier hund. Eigendur Yorka innan HRFÍ færast sjálfkrafa í Yorkadeild og þurfa því ekki að skrá sig í hana sérstaklega eins og þurfti áður fyrr.

Hvað gerir Yorka deild?
Hlutverk hennar er að að standa vörð um ræktun viðkomandi hundakyns, að vera ráðgefandi og að miðla fræðslu. Deildin skipuleggur einnig félagsstarf í kring um sína tegund.

Hvað er ræktunarráð og fyrir hvern er það?
Ræktunarráð er fyrir félagsmenn HRFÍ sem hafa hug á að setja á tíkina sína og vilja fá ráð varðandi hvaða hundur/hundar henta. Athugið að aðeins hundar sem hafa fengið dóm á hundasýningu koma til greina í vali ræktunarráðs, á það bæði við um tík og hund.
Ræktunarráð er ráðgefandi aðili um allt er viðkemur ræktun, eðli og umhirðu viðkomandi hundakyns. Ennfremur ber ræktunarstjórn að fræða um sögu kynsins, heilbrigði og uppruna. Félagsmenn HRFÍ sem vilja fá ráð ræktunarráðs um hvaða rakka skuli nota á tík sína skulu senda ræktunarráð skriflega umsókn (fyrirspurn) í síðasta lagi 2 mánuðum fyrir lóðarí tíkarinnar. Ræktunarráð skal leitast við að taka til meðferðar innan mánaðar þær skriflegu fyrirspurnir sem berast varðandi ræktun og undaneldi og benda á 3 hunda, sér það mögulegt en það er alfarið ákvörðun tíkareigandans hvort hann notar einhvern af þeim þrem hundum sem mælt er með eða einhvern annan (ekki skylt að nota þá). Gera má ráð fyrir lengri afgreiðslufresti berist fyrirspurnir í jólaleyfi eða sumarleyfi. Ábending ræktunarstjórnar gildir aðeins fyrir eina pörun og aðeins í 9 mánuði eftir dagsetningu pörunarumsóknar.

Hvað er gert á ársfundi deildar?
Á ársfundi er farið yfir það sem deildin stóð að á líðandi ári, skýrsla stjórnar lesin upp, stjórn kosin, valið í nefndir, viðurkenningar/bikarar afhentir (sbr. Presstop's bikarinn sjá neðar). Á þennan fund eru allir meðlimir Yorka deildar velkomnir.

Hvað er gert á deildarfundi deildar?
Deildarfundir eru meira þar sem fólk hittist og ræðir sína tegund. Reynt er að vera með uppákomur sem snúa að tegundinni t.d. fyrirlestur og önnur fræðsla þegar hægt er. Fólk getur rabbað og komið með tillögur hvað það vill láta gera fyrir tegundina. Farið er yfir það helsta sem er í gangi á fulltrúaráðsfundum og ef eitthvað nýtt er að koma í ljós með okkar tegund. Á þessa fundi eru allir meðlimir Yorka deildar velkomnir. Hvetjum nýliða til að mæta á þessa fundi og kynnast fleira fólki sem á sömu tegund og taka þátt í skemmtilegum uppákomum.

Hvað er gert á fulltrúaráðs fundum og fyrir hvern eru þeir?
Á þessum fundum mæta 1-2 fulltrúar úr stjórn úr öllum deildum HRFÍ þar sem stjórn HRFÍ taka fyrir málefni sem snúa að deildununum, tegundum þeirra og rekstur félagsins. Þessir fundir eru aðeins ætlaðir stjórnarmeðlimum og eru ekki auglýstir eins og hinir fundirnir á deildarsíðum.

Hvað er Presstops´s bikarinn?
Presstop´s farands bikarinn er viðurkenning frá Presstop´s ræktun í Svíþjóð sem stigahæsti Yorkshire Terrier ræktandi hvers árs hlýtur. Bikarinn er afhentur á ársfundi deildarinnar ár hvert. Til að sjá nánari upplýsingar um bikarinn og hvernig stigin eru reiknuð smellið hér

Af hverju eru engar heilsufarskröfur hjá tegundinni?
Tegundin okkar er sem betur fer mjög heilsuhraust og arfgengir sjúkdómar ekki vandamál. Fólk sem hefur áhuga hefur farið með hunda sína í augnskoðun en það er ekki skylda þar sem augnsjúkdómar eru ekki vandamál í tegundinn, enginn hundur hefur greinst. Augnskoðun er amk 1-2 sinnum á ári og kostaði 5.720kr árið 2010.

Hvað er FCI?

Ætti ég að skrá mig í HRFÍ?

Til hvers eru hundasýningar?

Til hvers eru ræktunarmarkmið eða ræktunarstaðlar ?