Yorkshire Terrier deild Hundaræktafélags Íslands var stofnuð árið 1993. Stofnfundur deildarinnar var haldinn 13 nov 1993 mættur var formaður HRFÍ Guðrún Guðjónsen Í stjórn voru kosnir: Aðalheiður Karlsdóttir formaður, Anna Björgvinsdóttir, Guðbjörg Inga Aradóttir. Varamenn: Elvar Freyr Jónsteinsson, Rósa Maria Waagfjörð
Stjórn 1997.
Elvar Jónsteinsson formaður, Kristin Erla Karlsdóttir Gjaldkeri, Ari Benediktsson ritari. Varamenn Sigríður B Thorarensen, Klara Hafsteinsdóttir.
Stjórn 1998
Ari hætti sem ritari og Sigríður hætti sem varamaður, Klara tók við ritarastöðu, Valdís Magnúsdóttir og Snorri Ólafur Snorrason voru kosin varamenn annað hélst eins.
Deildin var lögð niður tímabundið árið 1999 vegna skorts á ræktunardýrum. Árið 2003 var stofnuð hópdeild utan um terrier hunda (Terrier deild) og fylgdi Yorkinn þar með. Með innflutningi nýrra hunda fór stofninn að taka við sér upp að því marki að árið 2010 var möguleiki á að stofna sérdeild aftur. Deildin var samþykkt á aðalfundi HRFÍ þann 26. maí 2010 og var stofnfundur nýrrar Yorka deildar haldinn 19.júlí 2010. Í stjórn voru kosnir stofnendur nýju deildarinnar:: Rebekka Lea Te Maiharoa formaður, Sunna Hlín Gunnlaugsdóttir ritari, Bertha Eronsdóttir gjaldkeri. Varamenn: Elvar Freyr Jónsteinsson og Kristín Erla Karlsdóttir.
Stjórn Yorkshire terrier deildar eftir ársfund 2010:
Rebekka Lea Te Maiharoa - Formaður - yorkadeild@gmail.com
Sunna Hlín Gunnlaugsdóttir - Ritari -
sunnahlingunnlaugs(á)gmail.com
Bertha Eronsdóttir - Gjaldkeri - bertha.s(á)simnet.is
Elvar Freyr Jónsteinsson - Meðstjórnandi - istopps(á)internet.is
Kristín Erla Karlsdóttir - Meðstjórnandi - swedetops(á)simnet.is
Tölvupóstur stjórnar er : yorkadeild@gmail.com (Hafa allir stjórnarmenn aðgang að þessum tölvupósti og óskum við eftir að tölvupóstar til deildarinnar berist þangað.)
Umsjónarmaður vefsíðu er Rebekka Lea Te Maiharoa
(e-mail varðandi heimasíðu skulu sendast á rebekkalea(á)internet.is , vinsamlegast takið fram í póstinum hvað nákvæmlega þið viljið að sé gert t.d. við myndir, á að setja þær í ættbók, myndagallerý, dagatalakeppni, annað? það sparar tíma og vinnu við að senda pósta fram og til baka til að athuga hvað nákvæmlega er ætlast til)
ATH. Netföngin innihalda merkið (á) í stað @ til að hindra að tölvuforrit finni tölvupóstföngin á netinu og sendi ruslpóst á þau.
Vinsamlegast breytið merkinu handvirkt þegar þið sendið tölvupóst.