Hér setjum við sögur og texta um Yorkann þinn. Sendu endilega inn skemmtilega sögu eða lýsingu á þínum Yorka til okkar í tölvupósti og sýndu fólki þannig hve frábær tegund þetta er. Æskilegt er að láta mynd fylgja en ef hún fylgir ekki með þá er notuð mynd úr ættbók. Vinsamlegast merkið tölvupóstinn (setjið í subject) : Yorkinn minn svo við vitum hvert efnið frá ykkur á að fara :) Here are stories of Icelandic Yorkies. Send us your story via e-mail and show everyone what a great breed the Yorkshire Terrier is. Please attach a photo if possible but if not a photo from our pedigree database will be put with your story. |
Hann Fídó minn (Gulltoppa Amadeus Happy Cover í ættbók) er í alla staði æðislegur hundur :) Bráðgáfaður félagi, sem elskar fátt meira en hlýðni, hundafimi, spor, og allt sem kallast þjálfun. Hann elskar fátt meira en að borða, hann er góð þjófavörn og geltir bara ef einhver ástæða er fyrir því en er enn að læra að hann á ekki að gelta á rusl sem hann sér fjúka úti hehe (hann heldur að það sé á lífi). Fídó fær mann alltaf til að hlægja, hann minnir mig ótrúlega mikið á hundinn í ''Marley and me'', einu sinni batt ég hann fyrir utan Dominos á meðan ég rétt skrapp inn, sá ég ekki litla loðboltann minn hlaupa inn beint á bakvið í eldhúsið og át alla matarafganga sem hann fann á gólfinu. Fídó er bara besti hundur í heimi í mínum augum, gæti ekki lifað án hans. Eigandi: Sunna Rós Sigurðardóttir |
Mandla mín er rosalega klár, er enga stund að læra ný trix. Hún fullt af trixum m.a. að leggja loppuna á hluti sem ég bið hana að snerta, stíga með báða framfætur upp á hluti (förum bráðum í að æfa hana að setja framfæturnar á bolta á gólfinu) og núna er hún að læra að halda á matardallinum í munninum :) Mandla er algjört matargat og hún minnir mann sko á þegar tími er kominn til að fóðra hundana. Þá sest hún á valinn stað, ýmist beint í kjöltuna á þér eða í sófastólinn beint á móti þér og horfir svo í augun á þér og vælir lágt með biðjandi augnráði. Ef ég segi nei þá bíður hún í smá tíma áður en hún prófar aftur. Ef of langur tími líður þá geltir hún að þér og lítur svo til skiptis á þig og svo á matardallinn :) Hún skilur mannamál vel og það þarf bara að tala við hana og hún gerir það sem þú vilt. Ef hún skilur ekki orðið sem þú ert að segja henni hallar hún oft undir flatt og hún heldur alltaf frábæru augnsambandi þegar þú talar við hana. Hún hefur alltaf áhuga á öllu sem ég segi við hana, horfir í augu mín og stundum kemur hún til mín að virðist bara til að dást að eiganda sínum litla krúttið, horfir bara heillengi á mann án þess að biðja um neitt :) Hún er rosalega dugleg að láta mig dúlla við sig og er sérstaklega dugleg að láta mynda sig, ég stilli henni bara upp og hún er alveg kyrr fyrir mig. Henni semur vel við aðra hunda og er mjög hlýðin og góð, ekkert mál að vera laus úti með manni. Kveðja Rebekka Eigandi: Rebekka Lea Te Maiharoa og Elvar Jónsteinsson |