Feldhirða

Það er alveg nóg að bursta þá daglega og leyfa hárinu að vaxa eða hafa hárið klippt stutt, það eru til klippingar sem hæfa þeim mjög vel. En ef Yorkinn þinn á að verða sýningarhundur á þá við önnur umhirða á feldinum. Feldinn þarf að pakka upp því annars nær hann ekki að verða gólfsíður, sem hann þarf að vera. Það tekur ca. 2 tíma einu sinni í viku að baða hundinn, bera olíu/næringu í feldinn og pakka honum upp, síðan fer ca. 30 mín. á hverjum degi í að greiða niður úr pökkunum, bera meiri olíu/næringu í og endurpakka.

 





Svona á að pakka Yorkshire Terrier upp.


Hér er sýnt hvernig feldinum er pakkað inn, með olíu eða næringu.