Hvernig persóna er Yorkshire Terrier?

Dálítið um skapgerð og umgengni:

Yorkshire Terrier er oft lýst sem Terrier í silkifeld. Það er útskýrt þannig að hundarnir geta verið heillandi og tælandi á meðan þeir eru að ná taki á eigendum sínum,
þeir láta sem þeir séu að gera eigendunum til hæfis, en í raun eru þeir að kenna þeim að umgangast sig. Úthald, hugrekki og árvekni eru aðalsmerki þessa litla hundakyns. Persónuleiki þeirra er
mikill, þeir eru gáfaðir, öruggir með sig og rólegir, en verða mjög aktífir ef etthvað er um að vera.
Þeir eru frábærir varðhundar og passa vel upp á sína. Það þarf því stundum að hafa vit fyrir honum þegar stærri hundar eiga í hlut, því sjálfur heldur hann víst að hann séSheffer eða jafnvel Stóri Dani.Yorkinn elskar fjölskyldu sína meira en lífið sjálft. Hann er ánægðastur ef hann fær að taka þátt í daglegu lífi á heimilinu og er alveg sannfærður um að ekkert sé hægt að gera án þess að hann hafi þar hönd í bagga.
Yorkinn er góður fjölskylduhundur.