Standard (Ræktunarmið)

Heildarútlit: Síður feldur sem liggur alveg sléttur og jafn niður með síðunum með skiptingu frá trýni að enda rófu. Skrokkur þéttur og snotur, háreistur með tignarlegum blæ. Heildaryfirbragð ber með sér merki um þróttmikinn líkama sem samsvarar sér vel.

Skapgerðareinkenni: Vökull og greindarlegur lítill terrier.

Geðslag: Fjörugt jafnaðargeð.

Haus og hauskúpa:
Haus frekar
smár og flatur, og má hauskúpan hvorki vera of gróf, kringlótt né nefbak of langt. Trýni skal vera svart.

Augu: Miðlungs stór, dökk og tindrandi með skörpu greindarlegu tilliti, og þannig staðsett að þau vísi beint framm. Mega ekki vera útstæð. Hvarmar dökkir.

Eyru: Lítil þríhyrnt, upprétt og þannig staðsett að ekki sé of langt á milli þeirra, snögghærð með djúp-gullnum lit.

Munnur: Lýtalaust, jafnt og fullkomið skærabit þ.e. tennur í efri kjálka skari þétt tennur í neðri kjálka. Tennur þéttar og reglulegar.

Háls: Vel reistur.

Framhluti: Herðablöð vel ásett, Fætur beinir og vel hærðir þar sem djúp-gullinn liturinn hefur ljósari hárbrodda en rót og nær ekki hærra en aðolnboga.

Bolur: Sterklegur með hóflega hvelfdu rifjahylki, góðri lend og láréttri yfirlínu.

Afturhluti: Fætur vel beinir séð aftan frá og hnjáliðir hóflega vinklaðir. Fætur skulu vera vel hærðir djúp-gullnum feldlit sem hefur heldur ljósari hárbrodda en rót og nær ekki hærra upp legginn en að hnjám.

Loppur:
Kringlóttar með svörtum klóm.

Rófa: Venjulega stífð í miðlungslengd með miklu hári. Dökkblárri feldlitur en sést á bol, en þó dekkst á rófubroddi. Rófan berst ívið hærra en yfirlína baks.
Óstýft: Með miklu hári, dökkblárri feldlitur en sést á bol sérstaklega í rófuenda. Rófan berst ívið hærra en yfirlína baks og á að vera eins beint og hægt er. Lengdin á að vera í samræmi við búk og gefa heildarútlitinu jafnvægi.

Gangur/hreyfing: Frjálslegur með góðri viðspyrnu. Beint göngulag séð bæði að framan og aftan á meðan yfirlína baks helst bein.

Feldur: Feldur á bol meðallangur og rennisléttur (ekki liðað) glansandi, með fínni silkiáferð en ekki ullarkenndur. Feldur á haus er síður og dökk-gullinn, dekkri í hliðum og við eyru og á trýni þar sem hann skal vera vel síður. Dökk-gullni liturinn á haus má ekki ná aftur á hnakka, né heldur mega grá eða svört hár blandast gullna litnum.

Litur: Dökk stálblár (ekki silfur blár), nær frá hnakkakúlu að enda rófu, aldrei blandaður með gulbrúnu, brons eða svörtu hári. Ríkulegur feldur skær-gullinn á bringu. Öll gyllt hár eiga að vera dekkri við rót en við miðbik og lýsast að hárendum.

Stærð: Upp að 3.1 kg (7 lbs).

Gallar: Öll frávik frá ofangreindum atriðum ber að álíta sem galla og skal metast í réttu hlutfalli að því marki sem frávikið er frá og áhrif þess á heilsu og velferð hundsins.

Athugið: Hundar skulu hafa eðlilega staðsett eistu sem eru gengin niður.