Sýningar / Dogshows

Yfirlit dómarar

Presstops bikarinnSýningarFD
* Nýjar sýningarreglur jan 2008 (opnast í word skjali) - New regulations in dogshows january 2008 (opens in word document)


Næstu sýningar Hundaræktafélags Íslands 2011 - 2013 / Dogshows in Iceland 2011 - 2013

Opin / Freestyle sýning Yorkshire terrier og Shih Tzu deilda / Yorkshire terrier and Shih Tzu club´s Freestyle shows
Gæludýr.is, Korputorgi, Reykjavík 29.október 2011
Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 15. október
Dómaranemar/Aspiring Judges: Þórdís Björg, Daníel Örn

Alþjóðleg hundasýning í reiðhöllinni Víðidal / International Dogshow
Reykjavík 19.-20. nóvember 2011
Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 21. október
Dómarar/Judges: Blaz Kävcic (Sólvenía), Gert Christensen (Danmörk), Marija Kävcic (Sólvenía), Rony Doedijns (Holland), Saija Juutilainen (Finnland), Stelios Makaritus (Grikkland).

Alþjóðleg hundasýning í reiðhöllinni Víðidal / International Dogshow
Reykjavík 25.-26. febrúar 2012
Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 27. janúar 
Dómarar/Judges: Maria Talvitie (Finnland), C.E. Cartledge (Bretland), Rafael Malo Alcrudo (Spánn), Tino Pehar (Króatía), Lisbeth Mach (Sviss), Zorica Salijevik.

Alþjóðleg hundasýning í reiðhöllinni Víðidal / International Dogshow
Reykjavík 2.-3. júní 2012
Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 4. maí                                                                      
Dómarar/Judges: Liliane De Ridder- Onhena (Belgía), Cathy Delmar (Írland), Sean Delmar (Írland), Kitty Sjong (Danmörk), Albert Wight (Bretland).

Alþjóðleg hundasýning í reiðhöllinni Víðidal / International Dogshow
Reykjavík 25.- 26. ágúst 2012
Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 27. júlí
Dómarar/Judges: Rita Reyniers (Belgía), Theo Leenen (Belgíu) ofl.

Alþjóðleg hundasýning í reiðhöllinni Víðidal / International Dogshow
Reykjavík 17.- 18. nóvember 2012
Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 19. október
Dómarar/Judges: Tapio Eerola (Finnland) ofl.

Alþjóðleg hundasýning í reiðhöllinni Víðidal
Reykjavík 23.- 24. febrúar 2013
Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 25. janúar                                                             
Dómarar/Judges: Göran Bodegard (Svíþjóð), Niksa Lemo (Króatía), Ann Ingram (Írland), Nina Karlsdottir (Svíþjóð), Hanne laine Jensen (Danmörk) ofl.

Meistarasýning í reiðhöllinni Víðidal
Reykjavík 25.- 26. maí 2013
Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 26. apríl                                                             
Dómarar/Judges: Paul Jentgen (Lúxemborg), Lena Stålhandske (Svíþjóð) ofl.

Alþjóðleg hundasýning í reiðhöllinni Víðidal
Reykjavík 7.- 8. september 2013
Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 9. ágúst                                                             
Dómarar/Judges: Hans Van den Berg (Holland), Agnes Ganami (Ísrael), Eeva Rautala (Finnland), Laurent Pichard (Sviss) ofl.



ISCH Swedetop´s Blast From The Past (Jacky)

Skammstafanir

ISCh. - Íslenskur meistari / Icelandic Champion

ISShCh - Íslenskur sýningameistari / Icelandic Show Champion

DKCH. - Danskur meistari / Danish Champion

FINCH. - Finnskur meistari / Finnish Champion

NUCH. - Norskur meistari / Nowegian Champion

SUCH. - Sænskur meistari / Swedish Champion

GBCH. - Breskur meistari / British Champion

NORD.UCH. - Norðurlandameistari / Norrænn sýningarmeistari / Nordic Champion

C.I.B. - Alþjóðlegur fegurðarmeistari (áður INTUCH) / International Beauty Champion (former INTUCH)

(C.I.T. - Alþjóðlegur vinnumeistari) / International Working Champion

C.I.E. - Alþjóðlegur sýningameistari / International Show Champion

CACIB - Alþjóðlegt meistarastig / One point for International Champion (Certificats d'Aptitude au Championnat International de Beauté)

Res.-CACIB - Vara-alþjóðlegt meistarastig / Rec- point to International Champion

FCI - Samtök alþjóðlegra hundaræktafélaga / Fédération Cynologique Internationale (International association)

HD - Mjaðmalos / HIP DYSPLASIA

AD - Olbogalos

HRFÍ - Hundaræktarfélag Íslands / The Icelandic Kennel Club

 

Fanneyjar Dofri Out Of Africa (Dofri)

 

Sjá fleiri borða neðst á síðu
You can see more ribbons on the bottom of the this page

Einkannir


Excellent
í gæðadómi: Hundurinn kemst mjög nálægt staðli hundakynsins að gerð og byggingu, sýndur í frábæru líkamlegu formi og í góðu andlegu jafnvægi; stórglæsilegur og af háum gæðum. Kostir hans sem fulltrúa hundakynsins eru svo augljósir að óverulegir útlitsgallar draga hann ekki niður; tilhlýðlegur munur er á tík / rakka. RAUÐUR BORÐI


Very Good
í gæðadómi: Hundurinn er dæmigerður að gerð og bygging hans er í góðu jafnvægi. Líkamlegt form er gott. Minniháttar gallar eru þolanlegir, enda kemur enginn þeirra niður á heilbrigðri byggingu hundsins. Þessa einkunn má einungis veita hundi sem býr yfir glæsileik.

Gulur borði
Good
í gæðadómi: Hundurinn er viðunandi hvað varðar gerð, en hefur þó sýnilega galla.


Sufficient
í gæðadómi: Hundurinn er sæmilegur að gerð en þó ekki týpiskur fulltrúi hundakynsins eða í lélegu formi.

0. einkunn í gæðadómi: Hundur er ekki dæmigerður að gerð og byggingu fyrir hundakynið; hann sýnir árásargirni eða hegðun sem er í algeru ósamræmi við eiginleika hundakynsins; hann er ekki með tvö eðlileg og rétt staðsett eistu; hann er með tann- eða kjálkagalla; litar- eða feldgalla eða er albínói. Þessi einkunn er einnig gefin hundi þar sem gerð eða bygging hans kemur niður á heilsu hans eða almennu heilbrigði og hundi sem er með gala sem er óásættanlegur (disqualifying) samkvæmt staðli hundakynsins. Ástæður 0 einkunnar skal alltaf tilgreina í umsögn og á niðurstöðublaði. Hundur sem í þrígang hefur fengið einkunnina 0 vegna skapgerðar / hegðunar skal útilokaður frá keppni hundasýninga HRFÍ.

Hundar sem hljóta ekki einhverja af ofangreindum einkunnum ljúka keppni með umsögnina:

"Ekki hægt að dæma” (EHD) / Can not be judged: Þessi umsögn er gefin hundi sem á því augnarbliki sem dómarinn er að dæma hann, hreyfir sig ekki, víkur sér undan handfjötlun og skoðun dómara t.d. á tönnum, líkamsbyggingu, skotti og eistum, stekkur stöðugt upp á sýnanda, reynir að komast út úr hringnum eða hegðar sér þannig eða er þannig á sig kominn líkamlega að ekki er hægt að dæma hreyfingar hans eða líkamsbyggingu. Sama getur átt við um hund sem dómari telur sig sjá merki um eða hefur ríka ástæðu til að gruna að aðgerð hafi verið gerð á eða hannmeðhöndlaður þannig að það geti haft áhrif á dóm. Ástæðu umsagnarinnar skal getið í umsögn og á niðurstöðublaði.

ME (Mætir ekki) / Absent


Heiðursverðlaun - fjólublár borði (gefið lofandi hvolpum eða öldungum í sérlega góðu formi).


Meistaraefni:

Veita má meistaraefni þeim Excellent hundum sem teljast framúrskarandi að gerð og eru að öllu leyti rétt byggðir með tilliti til ræktunarmarkmiðs tegundarinnar.


Íslenskt meistarastig

Meistarastig eru síðan veitt þeim rakka / tík sem bestu sætaröðun hlýtur í keppni um besta rakka og bestu tík tegundar, af þeim hundum sem koma til álita fyrir stigið og hafa áður hlotið meistaraefni. Komi hundar í sætum 1-4 ekki til álita fyrir stigið, veitir dómari það hundi úr hópi þeirra sem eftir standa með meistaraefni og til álita koma fyrir stigið.

Til að hundur geti orðið íslenskur (sýninga)meistari verður hann að hafa fengið þrjú stig til meistara á þremur ræktunarsýningum HRFÍ, hjá þremur dómurum. Hundur getur þó ekki orðið íslenskur sýningameistari nema því aðeins að hann hljóti a.m.k. eitt af þremur meistarastigum eftir 24 mánaða aldur. Þessi regla gildir nú um allar hundategundir.


Alþjóðlegt meistarastig / CACIB
Á alþjóðlegum sýningu keppa rakkar og tíkur um alþjóðlegt meistarastig (CACIB) og vara-alþjóðlegt meistarastig (Res-CACIB), í keppni um besta rakka og bestu tík tegundar. Dómari tilnefnir rakka og tík sem bestu sætaröðun hlýtur af þeim hundum sem til álita koma fyrir stigið og sem hann telur af yfirburða gæðum, og fær sýnanda spjald undirritað af dómara því til staðfestingar.
FCI, Alþjóðasamtök hundaræktarfélaga, hafa endanlegt ákvörðunarvald um veitingu stigsins. Einungis þeir hundar sem hlotið hafa Excellent koma til greina fyrir CACIB. Hundur sem er skráður í ungliðaflokk eða öldungaflokk kemur ekki til álita fyrir stigið.


Vara- Alþjóðlegt meistarastig / Rec-CACIB: Gefið þeim sem næstur er í sætaröðun við þann sem fær alþjóðlega stigið. Ef sá sem fékk alþjóðlega stigið getur af einhverjum ástæðum ekki fengið það færist stigið niður á þann sem fær vara-alþjóðlegt stig.

Alþjóðlegur meistari (C.I.B)
Til að hljóta alþjóðlegan meistaratitil þarf hundur að hljóta fjögur meistarastig (CACIB) á fjórum alþjóðlegum sýningum, sjá þó sérreglur um meistaratitil fyrir vinnuhunda (gr.71-75). A.m.k. eitt ár verður að líða frá því að hundur fær sitt fyrsta stig og til þess fjórða. Þá skulu stigin hafa verið veitt af dómurum af a.m.k. þremur þjóðernum frá FCI aðildarlöndum.

1 stig má vera frá "non FCI" landi (t.d. England, Bandaríkin, Canada) ef hin 3 stigin eru frá FCI löndum.

 

 


 

Flokkaskipting

Skráning í flokka miðast við aldur hundsins og þann árangur sem hundurinn hefur náð áður. Tekið er mið af fyrsta degi sýningar vari sýningin lengur en einn dag.

Ungviðaflokkur
Ungviðaflokkur er flokkur fyrir hvolpa á aldrinum 4 - 6 mánaða.
Hvolpurinn fær skriflega umsögn en einkunn er ekki gefin. Keppt er um sætaröðun. Sérlega lofandi hvolpar geta fengið Heiðursverðlaun.
Hvolpur í fyrsta sæti sem jafnframt fær Heiðursverðlaun, keppir um titilinn ,,Besta ungviði tegundar". Sá keppir síðan til úrslita um besta ungviði sýningar (eða dagsins, ef sýning stendur í tvo eða fleiri daga).

ENGLISH

Baby class (4-6 months old) - ungviðaflokkur
Puppy class (6-9 months old) - hvolpaflokkur
Junior class - Ungliðaflokkur
Youngsters/Intermediate class - Unghundaflokkur
Open class - Opinn flokkur
Working class - Vinnuhundaflokkur
Champion class - Meistaraflokkur
Veteran Class - Öldungaflokkur

Progeny class - Afkvæmahópur
Breeder´s class - Ræktunarhópur

 

Hvolpaflokkur
Hvolpaflokkur er flokkur fyrir hvolpa á aldrinum 6 - 9 mánaða
Hvolpurinn fær skriflega umsögn en ekki einkunn. Keppt er um sætaröðun. Sérlega lofandi hvolpar geta fengið Heiðursverðlaun
Hvolpur í fyrsta sæti sem jafnframt fær Heiðursverðlaun, keppir um titilinn ,,Besti hvolpur tegundar". Sá keppir síðan til úrslita um besta ungviði sýningar (eða dagsins ef sýning stendur í tvo eða fleiri daga).

Ungliðaflokkur
Ungliðaflokkur er flokkur fyrir hunda á aldrinum 9 - 18 mánaða.
Í ungliðaflokki fær hundur skriflega umsögn og einkunn.
Þeir hundar sem hlotið hafa a.m.k. Very good keppa um sætaröðun 1-4.. Excellent hundar sem þykja svo framúrskarandi að gerð og byggingu og með svo óverulega galla að þeir geta talist framúrskarandi fulltrúar hundakynsins, geta hlotið Meistaraefni.

Hundar sem hljóta Meistaraefni færast upp í keppni um besta rakka / tík tegundar. [Ungliðar koma ekki til álita fyrir CACIB stig]

Unghundaflokkur
Unghundaflokkur er flokkur fyrir hunda á aldrinum 15 - 24 mánaða.
Í unghundaflokki fær hundur skriflega umsögn og einkunn.
Þeir hundar sem hlotið hafa a.m.k. Very good keppa um sætaröðun 1-4.. Excellent hundar sem þykja svo framúrskarandi að gerð og byggingu og með svo óverulega galla að þeir geta talist framúrskarandi fulltrúar hundakynsins, geta hlotið Meistaraefni.

Hundar sem hljóta Meistaraefni færast upp í keppni um besta rakka / tík tegundar.

Opinn flokkur
Opinn flokkur er fyrir hunda sem eru 15 mánaða og eldri.
Hunda með íslenska meistaranafnbót (ISCH, ISSCH) er ekki hægt að skrá í opinn flokk.
Í opnum flokki fær hundur skriflega umsögn og einkunn.
Þeir hundar sem hlotið hafa a.m.k. Very good keppa um sætaröðun 1-4.. Excellent hundar sem þykja svo framúrskarandi að gerð og byggingu og með svo óverulega galla að þeir geta talist framúrskarandi fulltrúar hundakynsins, geta hlotið Meistaraefni.

Vinnuhundaflokkur
(Á ekki við Yorkshire Terrier)

Meistaraflokkur
Þessi flokkur er opinn fyrir hunda sem náð hafa viðurkenndum meistaratitli (C.I.B., C.I.E. ISSCH, ISCH eða sambærilegum titlum FCI aðildarlanda eða frá félögum viðurkenndum af FCI). Að baki slíkum titli þurfa að vera amk. tvö meistarastig frá landinum sem veitti meistaranafnbótina og hundarnir þurfa að hafa náð 15 mánaða aldri.

Íslenskan meistara/sýningarmeistara skal skrá í meistraraflokk eða öldungarflokk.
Í meistaraflokki fær hundur skriflega umsögn og einkunn.

Þeir hundar sem hlotið hafa a.m.k. Very good keppa um sætaröðun 1-4.. Excellent hundar sem þykja svo framúrskarandi að gerð og byggingu og með svo óverulega galla að þeir geta talist framúrskarandi fulltrúar hundakynsins, geta hlotið Meistaraefni.

Öldungaflokkur

Til þátttöku í öldungaflokki má skrá hund sem náð hefur 8 ára aldri Öldungur fær skriflega umsögn og einkunn.Öldungar með a.m.k. Very good keppir um sætaröðun 1-4. Öldungar í sérlega góðu formi geta hlotið Heiðursverðlaun. Excellent öldungar sem þykja svo framúrskarandi að gerð og byggingu og með svo óverulega galla að þeir geta talist framúrskarandi fulltrúar hundakynsins geta hlotið Meistaraefni.

Hundar með Meistaraefni færast upp í keppni um besta rakka / bestu tík tegundar. (breyting 20.des 2007 : Ekki verður lengur hægt að skrá í öldungaflokk auk opins flokks – einungis má skrá hund í einn flokk á hverri sýningu.)

Rakki og tík með 1.sæti í öldungaflokki og Heiðursverðlaun eða Meistaraefni keppa um titilinn Besti Öldungur Tegundar. Sigurvegari þeirra keppni fer áfram í keppni um titilinn Besti Öldungur Sýningar. það gildir þó ekki um hunda sem vinna tegundarhóp sem hundakynið tilheyrir (BIG-1) og keppa til úrslita um Besta Hund Sýningar.

ATH! Hundur sem einungis eru skráður í öldungaflokk á alþjóðlegum sýningum getur hlotið íslenskt meistarastig en hann getur ekki keppt um alþjóðlegt meistarastig (CACIB) á aþjóðlegum sýningum.

Besti hundur/besta tík
Allir hundar/tíkur sem hlotið hafa meistaraefni keppa um sætaröðun 1-4 og titilinn “besti rakki tegundar / besta tík tegundar. “

Á alþjóðlegum sýningum er keppt um alþjóðlegt meistarastig (CACIB) og vara-alþjóðlegt meistarastig (Res. CACIB) í þessum keppnisflokki. Alþjóðlegt meistarastig má aðeins veita þeim hundi sem náð hefur 15 mánaða aldri (sjá kafla II, gr.8) og sem ekki hefur öðlast alþjóðlega meistaranafnbót (INTUCH) staðfesta af FCI.

Besti hundur tegundar
Besti rakki og besta tík keppa um titilinn „Besti hundur tegundar (BOB = Best Of Breed) og Besti hundur af gagnstæðu kyni (BOS = Best Opposite Sex). Dæmi fleiri en einn dómari viðkomandi tegund, skal sýningarstjórn tilnefna annan þeirra til að velja BOB. BOB keppir um sætaröðun 1-4 í þeim tegundahópi sem hundakynið tilheyrir.

Besti hundur tegundarhóps
Á alþjóðlegum sýningum keppir BOB hvers hundakyns um titilinn Besti hundur tegundarhóps (BIG) og sætaröðun 1-4. Tegundarhópar eru tíu og gilda reglur FCI um hvaða hundakyn tilheyra hverjum. Dæma má saman í tegundarhópum 4 / 6 og hunda í tegundarhópum 7 / 8.

Besti hundur sýningar
Sigurvegari hvers tegundarhóps keppir til úrslita og sætaröðun 1-4 í Besta hund sýningar (BIS)

Afkvæmahópu
r
Rétt til þátttöku með afkvæmahóp hefur tík/rakki með þrjú til fimm afkvæmi. Afkvæmin verða að vera skráð til þátttöku og sýnd í öðrum flokkum sýningar,
þó ekki í hvolpaflokki. Sama gildir um undaneldistík/rakka sem verða að vera skráð til þátttöku og sýnd í öðrum flokkum sýningar, þó ekki hvolpaflokkum. Sama gildir um undaneldistík/rakka sem verða að vera skráð til þáttöku og sýnd í öðrum flokkum sýningar.

Afkvæmi og undaneldishundar mega ekki hljóta einkunnina 0 eða Ekki hægt að dæma. Aðeins má sýna undaneldisrakkann/tíkina með einn afkvæmahóp á viðkomandi sýningu. Afkvæmin verða að vera af sömu stærð og hafa sama feldlag.

Eigandi / sýnandi undaneldishunds/tíkur velur sjálfur þau afkvæmi sem hann vill sýna í afkvæmahópi. Sýnandi afkvæmahóps skal tímanlega tilkynna hringstjóra hvaða afkvæmi hann hefur valið og gera eigendum þeirra viðvart í tíma. [Tala við hringstjóra milli þess þegar besta tík hefur verið valin en áður en besti hundur tegundar er valinn, ræktandi skal láta hringstjóra fá númer þeirra hunda sem keppa, skrifa ræktunarnafn og kvitta á umsagnarblaðið]

Hópurinn fær umsögn og einkunn sem ein heild. Til að unnt sé að veita afkvæmahópi Heiðursverðlaun er megin áhersla lögð á að hópurinn sé jafn að gerð og gæðum og samleitur undaneldishundunum/tíkinni og telst það tegundinni frekar til framdráttar en sá árangur og einkunnargjöf sem einn einstakur hundur í hópnum hefur hlotið.

Sýnanda/eiganda ber að sýna hund í akvæmahópi óski eigandi ræktunartíkur/hunds þess.

Besti afkvæmahópur tegundar með Heiðursverðlaun keppir til úrslita um Besta Afkvæmahóp Sýningar (eða dagsins, ef sýningin stendur í tvo eða fleiri daga).

Ræktunarhópur
Ræktunarhópur samanstendur af þremur til fimm hundum af sömu tegund frá einum og sama ræktanda (með sama ræktunarnafn). Ef fleiri en einn eru skráðir ræktendur hópsins skal þess getið. Ef aðili er ræktandi en jafnframt meðræktandi að öðru goti, má ekki sýna þau afkvæmi saman í ræktunarhópi.
Aðeins má sýna einn ræktunarhóp af sömu tegund frá sama ræktanda á sömu sýningu.

Hundarnir verða að vera af sama stærðarflokki og hafa sama feldlag og lit, þar sem það skiptir máli, og að vera skráðir til þáttöku í öðrum flokkum sýningar, þó ekki í hvolpaflokkum. Hundarnir mega ekki hljóta 0 í einkunn eða Ekki hægt að dæma.
Hópurinn fær umsögn og einkunn sem ein heild. Til að unnt sé að veita ræktunarhópi Heiðursverðlaun er megin áhersla lögð á að hópurinn sé jafn að gerð, gæðum og útliti, og telst það tegundinni meira til framdráttar en sá árangur og einkunnargjöf, sem einn einstakur hundur í hópnum hefur hlotið.

Ræktandi skal gera eigendum hunda sem hann hefur valið að sýna í ræktunarhópi viðvart í tíma. Ræktandi skal tilkynna ´timanlega til hringstjóra hvaða hunda hann hefur valið. [Tala við hringstjóra milli þess þegar besta tík hefur verið valin en áður en besti hundur tegundar er valinn, ræktandi skal láta hringstjóra fá númer þeirra hunda sem keppa, skrifa ræktunarnafn og kvitta á umsagnarblaðið] Sýnanda/eiganda ber að sýna hund í ræktunarhópi óski ræktandi þess.

Besti ræktunarhópur tegundar með Heiðursverðlaun keppir til úrslita um Besta ræktunarhóp sýningar (eða dagsins, ef sýningin stendur í tvo eða fleiri daga).

Parakeppni
Í parakeppni er rakki og tík af sömu tegund í eigu sama aðila sýnd saman. Hundarnir verða að vera eldri en 9 mánaða. Tilgangur með parakeppni er að sýna fram á samleitni milli rakka og tíkur. Pör fá sætaröðun og par sem er framúrskarandi að gæðum getur fengið Heiðursverðlaun. Besta par tegundar með Heiðursverðlaun keppir áfram um Besta par sýningar (eða dagsins, ef sýningin stendur í tvo eða fleiri daga).

   

Titlar / Titles

ISCh                 Íslenskur meistari / Icelandic Champion
ISShCh             Íslenskur sýningameistari / Icelandic Beauty/Show Champion (dogs that haven´t finished their working part, does not apply to Yorkies)
ISFtCh              Íslenskur veiðimeistari / Icelandic working champion

ISAgCh             Íslenskur hundafimimeistari, hundur með ættbók / Icelandic Agility Champion with pedigree
ISAgMe             Íslenskur hundafimimeistari, hundur án ættbókar / Icelandic Agility Champion without pedigree
ISJuCh              Íslenskur hoppmeistari, hundur með ættbók / Icelandic Jumpers Champion with pedigree
ISJuMe              Íslenskur hoppmeistari, hundur án ættbókar / Icelandic Jumpers Champion without pedigree

ISTrCh              Íslenskur sporameistari / Icelandic Tracking Champion
ISObCh             Íslenskur hlýðnimeistari / Icelandic Obedience Champion
ISLcCh              Íslenskur meistari í beituhlaupi / Icelandic Lure Course Champion

   

Allar einkunnir svo og sætaröðun er sýnd með verðlaunaborðum sem hér segir:

Einkunn í gæðadómi/sætaröðun/hlýðni/hundafimi:

Excellent einkunn / 1. sæti - rauður borði

Very Good einkunn / 2. sæti - blár borði

Good einkunn / 3. sæti - gulur borði

Sufficient einkunn/ 4.sæti grænn borði

0. einkunn - enginn borði

Ekki hægt að dæmi (e.h.d.) - Enginn borði

Heiðursverðlaun - fjólublár borði.

Meistaraefni / Verðugur meistari - bleikur borði.

Þáttökuborði ungviða / hvolpa

1.sæti í ungviða / hvolpaflokk

2.sæti í ungviða / hvolpaflokk

3.sæti í ungviða / hvolpaflokk

4.sæti í ungviða / hvolpaflokk

Meistarastig - mjór borði í fánalitum.

Alþjóðlegt meistarastig (CACIB) - hvítur borði.

Vara-alþjóðlegt meistarastig (Reserve CACIB) - appelsínugulur borði.

Besti hundur sýningar - breiður borði í íslensku fánalitunum.

Besti hundur tegundar, 1. sæti - rauður og gulur borði.

Besti hundur tegundar, 2. sæti - hvítur og grænn borði.

Heiðursverðlaun fyrir afkvæma/ræktunarhóp - fjólublár og hvítur borði.


Aðrir borðar/Eldri borðar sem eru ekki notaðir lengur:


Þátttakendur í meistaraflokki - rauður og hvítur borði.

Þátttakendur í hlýðnikeppni - rauður, svartur og gulur borði.

Þátttakendur í hundafimi - svartur og appelsínugulur borði.

Besti öldungur tegundar - grár og bleikur borði

Meistaranafnbót - rauður og grænn borði.

0. einkunn - grár borði

Ekki hægt að dæmi (e.h.d.) - brúnn borði

All the ribbons we use in Iceland at our Dogshows:

 


Excellent
/ 1.place


Very Good
/ 2.place

Gulur borði
Good
/ 3.place


Sufficient
/ 4.place

0. prize -

"Ekki hægt að dæma” (EHD): Can not be judged

ME (Mætir ekki): Absent (ABS)

Prize of honor / Honorary Prize / Hp

Champion Quality (Worthy Champion)

Puppy class

1.place puppy class

2.place puppy class

3.place puppy class

4.place puppy class

Point to Icelandic Champion

CACIB - Point to International Champion

Rec. CACIB.

Best In Show

Best Of Breed

Best Of Opposite Sex

Honorary Prize for progeny/breeders class


Other ribbons/Older ribbons not used any more:


Participation in Champion Class

Participation in obedience

Participation in Agility

Best Veternary of breed

Championship nomination

0.prize

Can not judge

Eldri sýningar - Previous shows

Alþjóðleg hundasýning í reiðhöllinni Víðidal / International Dogshow
Reykjavík 26. - 27. febrúar 2011
Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 28. janúar 2011
Dómarar/Judges: Horst Kliebenstein (Þýskaland), Ligita Zake (Lettland), Birgit Seloy (Danmörk), Elina Haapaniemi (Finnland), Michael Forte (Írland), Janeiro Francisco Salvador (Portugal).

Deildarsýning Shih Tzu, Mjóhunda, Smáhunda, Terrier & Yorkshire Terrier Deild.
í Gæludýr.is, Reykjavík 16-17 April 2011
Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 08.apríl.2011
Dómarar/Judges: Arne Foss, Noregur. & Henrik Johannsen, Svíþjóð

Hundasýning í reiðhöllinni Víðidal / Championship Show
Reykjavík 4.- 5. júní 2011
Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 6. maí.
Dómarar/Judges: Annette Bystrup (Danmörk), Birte Scheel (Danmörk), Kresten Scheel (Danmörk), Svend Lövenkjær (Danmörk), Timonen Unto (Finnland).  Sampo Miettinen frá Finnlandi dæmir unga sýnendur.

Alþjóðleg hundasýning í reiðhöllinni Víðidal / International Dogshow
Reykjavík 27.-.28. ágúst 2011
Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 29. júlí
Dómarar/Judges: Carlos-Fernandez Renau (Spánn), Jos De Cuyper (Belgía), Kornelija Butrimova (Litháen), Javier Sanchez (Spánn), Monique Van Brempt (Belgía), Per Iversen (Noregur).

 



 

www.yorkshireterrier.is