Uppruni Yorkshire Terrier
Allir sem hafa spáð í uppruna Yorkshire Terrier eru sammála um það að hann varð sýndur sem "Broken-Haired Scotch Terrier" á fyrstu sýningunni í Burmingham árið 1860. Allir sigurvegararnir á þessari sýningu sem voru sýndir sem "Broken-Haired Scotch Terrier" voru í rauninni Skye Terrier. Þannig að þeir voru taldir vera afbrigði Skye Terriers. Næsta ár 1861 var sýning í Leeds í Bretlandi og var þá Yorkshire Terrier skilgreindur sem sérstök tegund.
Hvernig þetta allt gerðist getur hver og einn getið sér til um. En fólkið sem bjó í Lancashire og Yorkshire héraði þróaði tegundina, það er vitað vegna þess að allir fallegustu hundarnir komu þaðan, þegar hundasýningarnar byrjuðu árið 1859. En hvaða hundategundir eiga þátt í uppruna Yorkshire Terrier? því er fólk enþá að velta fyrir sér, allar deilurnar um hvort Skye, Clydesdale eða Paisle terrier hafi átt einhvern þátt í löngum feldinum, Maltes fyrir stærðinni, feldinum og byggingunni.
Því var haldið fram að hagsýnn ræktandi sem hafi skapað Yorkshire Terrierinn hafi aldrei ljóstrað upp hvernig hann skapaði þessa tegund. Hvað sem því lítur er það nokkuð mikið til í þeirri getgátu um að ullarvefnaðar menn í Clydesdale og Paisley hafi haft lítinn Terrier með síðan feld, meðferðis til vinnu til að losa ullar verksmiðjurnar undan rottum og músum.
Við komu iðn-byltingarinnar urðu Lancashire og Yorkshire mjög mikilvægur punktur í vefnaðarframleiðslu og með innkomu af nýjum vélbúnaðaði hafði sala viðskipta aukist og ullargerðarmennirnir frá Clydesdale ákváðu að reyna og sanna vinnu skylirði sín með því að flytja suður til hásettari vinnustaða í Yorkshire og þar í kring. Terrier hundarnir sem þeir höfðu meðferðis voru hreinræktaðir Clydesdale eða Paisley Terrier sem minnti örlíið á Skye Terrier en minni og með hrjúfari feld og gráleitari.
Skye Terrierinn er upprunin alveg frá tíma Elísarbetar drottningar, þá var uppi maður að nafni Dr Caius, hann skrifaði lista með öllum hundategundunum sem fundust á Englandi á þeim tíma, hann kallaði listan Ensku hundarnir
(Englishe Dogges). Skye er nefdur eftir eyju í norð-vestri. Hann er eini Terrierinn sem tilheyrir norð-vestur eyjunni.
Margir halda því fram að Skye Terrier kom fyrstur og að Paisley Terrier eigi rætur að rekja til hans. En maður að nafni Brian Vesey-Fitzgerald, sem er mikið búin að kanna sögu Yorkans, telur engan vafa á því að bæði Clydesdale og Paisley Terrier hafi komið á undan Skye Terrier. Hann sagði að það gæti ekki staðist að Clydesdale Terrier sé blanda af Yorkshire Terrier og Skye Terrier því að Yorkinn var tiltölulega ný tegund sem þróaðist á seinni hluta 19.aldar meðan Clydesdale var uppi miklu fyrr en það og var nánast útdauður árið 1856.
Árið 1887 var Clydesdale klúbburinn stofnaður, því miður endist klúbburinn ekki lengi og Paisley Terrier Klúbburinn fylgdi fast á eftir.
Þessi tegund var aldrei Gæluhundur (Toy), hann var frekar eins og Skye Terrier á að líta þó léttari á milli 7 -9 kg. Þeir voru með styttra bak, og voru upphaflega duglegir, harðgerðir litlir terrier hundar sem voru notaðir við veiðar á rottum og músum og öðrum meindýrum og gefur til kynna að hafa verið stórfenglegur baráttuhundur, ekki hræddur við neitt.
Til að byrja á feldinum, hann var langur en grófur, það mikið að hvolpar með silki feld, voru eitt sinn hafnað. Smám saman með vinsældum, varð silky feldurinn æskilegri og það var byrjunin á endirnum sökum vegna þess að hann byrjaði að lækka í tign. Árið 1924, 25, 26 og 27 var Clydesdale Terrier skráður í Ræktunar klúbbinn en fékk ekki inngöngu þannig að tegundin hætti að vera sjálfstæð tegund.
Clifford Hubbard sagði í bók sinni "Observer´s Book of Dogs" að endurlífgun tegundarinnar átti sér stað 1936 en dó út aftur (Ef til vill út af stríðinu)
Þannig að en í dag er óljóst hvaða tegundir urðu nákvæmlega til þess að skapa Yorkshire Terrier.
Mynd: www.sweetyblue.com